Niceland

Gerið ekkert sem ég myndi gera

28.11.2007 20:19:00 / Atli Már

Ný síða

Komin ný síða

 

emmatli.bloggar.is

 

þessi er slut

 

já sæll :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 08:51:07 / Atli Már

Allt að gerast

Jæja þar kom að því. Loksins er Emma komin og við erum flutt í nýju íbúðina sem við erum svona líka svakalega ánægð með. Fengum hana á mánudaginn og síðan þá er búið að vera að vinna í að gera hana sem heimilislegasta. Mánudagurinn fór samt að mestu leyti í að flytja draslið á milli og hjálpaði Morten mér helling þar og fengum við litla fiatinn hans Thomas að láni svo það þurfti að fara þónokkrar ferðirnar á milli. En hann var ekki með krók svo smá vesen var að redda stærra draslinu á milli, en þar kom Hrannar og bjargaði okkur, og komum við svefnsófanum inn í bílinn hans sem er 7 manna en ekkert voða stór, hvað er ekki hægt að gera með þrjóskunni :) Á þriðjudaginn byrjuðum við svo á að þrífa gömlu íbúðina mína og á ég að skila lyklunum á miðvikudaginn, vona bara að ég fái sem mest af deposituminu til baka. Svo var farið í Bilka og Ikea og Fiatinn notaður til að ferja draslið. Á miðvikudaginn og í gær er búið að fara aftur í Ikea og tvisvar í Jysk svo þetta er mest allt komið, nú á bara eftir að raða öllu dótinu og setja upp gardínur og hitt og þetta. Rúmið er á leiðinni og ætti að koma á mánudaginn, verður snilld að prófa að sofa á alvöru rúmi aftur, svefnsófinn orðinn pínu þreyttur :) 

Við erum ekki með internet ennþá í íbúðinni og veit ég ekki alveg hvenær það kemur, en ég fer að vinna í því. Á meðan kemst ég bara á netið í skólanum og Emma kemst bara ekkert á netið svo allir viti bara af því, við erum ekki búin að gleyma ykkur :) 

Annars er bara fínt að frétta, það var “haustfrí” í skólanum í þessari viku svo maður gat leyft sér að vera bara að vesenast í flutningunum. Árshátið SF Heklu er á morgun og verður það örugglega mjög gaman, allavega lítur dagskráin vel út.  

Held að það sé ekkert mikið meira sem ég hef að segja, vona bara að allir hafi það gott og við verðum meira á msn og svona þegar netið er komið heima. 

Ps. Mamma og pabbi og Gunna tengdó, takk kærlega fyrir innflutningsgjafirnar :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 16:58:40 / Atli Már

Póker

Sunnudagskveld, hvað gerir maður yfirleitt þá, horfir á sjónvarp.

Hvernig gengur það, illa, því það er EKKERT í sjónvarpinu, svo það er alveg á hreinu að þegar við erum flutt í nýju íbúðina verður keypt eitthvað af stöðvum svo hægt sé að horfa á eitthvað annað en fréttir og discovery sience.

 

En allavega, ekkert meira kvart.

Í gær var pókermót hjá heklunni. Snilldarmót og mjög gaman. Við vorum um 40 sem spiluðum held ég og datt ég út eftir 5 mín. En maður mátti kaupa sig inn einu sinni aftur og ég nýtti mér það, sem betur fer því eftir um 4 tíma af spileríi var ég orðinn sigurvegari. Mjög góður endir á góðu móti :)

 

Emma kemur á föstudaginn og hlakka ég mikið til, svo fáum við íbúðina 15 okt sem verður snilld. Fyrsta skipti sem maður fer í hina svokölluðu sambúð, efast ekki um að ég eigi eftir að standa mig vel, enda svo vel upp alinn ;)

 

Heklan spilaði á föstudaginn og töpuðum við 3-2 sem þýðir að við verðum að vinna næsta leik, sem er sá síðasti á tímabilinu, til að komast upp í seriu 4. puhe, vonum það besta.

 

Best að fara að reyna að finna eikkað að horfa á í imbanum :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 11:23:24 / Atli Már

Sumarið VAR tíminn

Jæja þar kom að því að maður settist loksins aftur við skriftir. Sit núna í skólanum, hlustandi á Bubba og get enganveginn komið mér í gang með að lesa, þessi föstudagur fer sennilega ekki í meiri lærdóm.

 

Smá update á það sem hefur gerst síðan ég skrifaði síðast.

  • Ég fór í próf
  • Náði sumum
  • Öðrum ekki
  • er að taka einn áfanga aftur, tölfræði, hver hefur ekki gaman af tölfræði
  • sumarið kom
  • ég fór heim
  • hitti tengdó
  • líkaði vel
  • og þeim held ég við mig
  • þori ekki að skrifa annað þar sem ég veit að tengdó mun lesa þetta blogg ;)
  • vann á virkum dögum, helvítis helling
  • var með emmu um helgar
  • fór á eitt ættarmót
  • versló var haldin á akureyri, þrátt fyrir að ég væri á hinum ólöglega aldri, náði að fela mig hjá ættingjum svo ég væri ekki rekinn í burtu
  • sumrinu lauk, margt skemmtilegt gert en ekki hægt að skrifa allt
  • fór aftur til dk

 

Og hér er ég svo kominn. Skólinn kominn á fullt. Emma var í heimsókn um daginn og fór í gær, en hún kemur aftur 12 okt því við erum búin að fá íbúð 15 okt. Fórum að skoða hana og hún lítur bara vel út, hlakka mikið til að flytja.

Jeppe er að koma frá köben á eftir og gistir hjá mér í nótt, það er svo gensynfest (reunion) hjá okkur sem vorum í Ihå saman á morgun.

 

EN loksins kom blogg, verður sennilega styttra í það næsta, enda Emma mun duglegri við þetta heldur en ég, kannski klessir hún einhverjum myndum inn þegar við erum flutt.

 

Allavega, fariði varlega yfir helgina :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 12:13:53 / Atli Már

Bilað að gera/heimsfrægð á næsta leiti ;)

Það er orðið alveg ægilega langt síðan ég bloggaði síðast, en ég er í prófum núna og hef engan tíma til að blogga, gerist samt von bráðar. Það er samt alveg hellingur búinn að gerast og þegar bloggið kemur, verður það ekki stutt.

En ég varð bra að segja eitt núna. Það var fusionsfest (sem er partý til að fagna sameiningu 4 skóla hér, þ.m.t. minn) á föstudaginn í háskólagarðinum þar sem hljómsveitir voru að spila og var alveg ægilega gaman. Allavega, þá sitjum ég, Emma, Ósk og Elvar í okkar mestu makindum að hlusta á tónlist og spjalla þegar ljósmyndari kemur og spyr hvort hann megi taka myndir af okkur. Jújú auðvitað leyfðum við blessuðum manninum það og hann smellti og smellti með þessari svaka myndavél, þakkaði svo fyrir sig og fór, en sagði samt að hann væri frá Jyllands posten, sem er blað hér í Århus.

Allavega, nokkrum mín síðar kemur annar gaur og biður um nöfnin á okkur til að setja við myndina í blaðinu, jújú eins og við erum nú hugulsöm sögðumst við vera íslendingar og buðumst til að skrifa nöfnin sjálf því hann myndi aldrei geta það. Svo fór hann eikkað að spjalla við mig meðan hinir voru að skrifa nafnið sitt, og þegar hann var kominn með blaðið í hendur aftur fór hann að skrifa niður og spjalla við mig. Kallinn var kominn í viðtal :P en bara gaman að því.

Svo kemst ég að því að við erum á baksíðunni á laugardagsblaðinu og erum líka á netinu, en greinin á netinu er án myndar. En svona til að klára ruglið set ég hér með greinina  á bloggið mitt fyrst Ósk var svona dugleg að finna hana á netinu. Þeir sem geta lesið þetta megið gera það, hinir mega reyna en þetta verður ekki þýtt, sorry, en nenni því bra ekki :)

 

Festivalstemning i universitetsparken

Af MARTIN JOHANSENOffentliggjort 27.05.07 kl. 03:00 Billige øl og festivalstemning til de studerende ved fusionsfesten i Universitetsparken. Nik & Jay fik chancen for at udvide fanbasen fra teenagepiger til studerende på højere læreanstalter.

?Ud med bøgerne og på med de skarpeste solbriller og sommerdresset.

Tusindvis af studerende var i går til Danmarks største fredagsbar i Universitetsparken.

Påskuddet for at drikke øl og høre bands som Nephew og Nik & Jay var megafusionen mellem Aarhus Universitet, Danmarks Miljøundersøgelser, Handelshøjskolen i Århus, Handels- og Ingeniørhøjskolen i Herning og Danmarks Pædagogiske Universitet.

Allerede midt på eftermiddagen var det ved at være svært at finde en ledig plet græs på de to skrænter foran scenen. Solen og den SU-venlige entrépris på 40 kr. lokkede de studerende inden for hegnet.

Ok hvis man er fuld
Det gjaldt f.eks.
fire islandske studerende,
der havde placeret sig strategisk godt i forhold til musikken - højt på bakken til venstre for scenen.

»Jeg har været til eksamen i morges, og det gik ikke så godt, så det skal drikkes væk,« grinede Atli Már Ólafsson, der læser på Handelshøjskolen.

Ligesom sine tre venner glædede han sig især til Nephew, der efter planen skulle på scenen kl. 19. Festen blev afsluttet med Nik & Jay.

Og ingen af de fire islændinge ville afvise, at duoen kunne udvide sin fanbase fra teenagepiger til studerende på de højere læreanstalter.

»Nik & Jay er fine nok, hvis man er fuld,« sagde Atli Már Ólafsson, der lød som en ung mand med en mission om at pendle til baren for at købe fadøl til 20 kr. stykket.

I øvrigt reklamerede de håbefulde - eller humoristiske - arrangører med et tilbud på fem øl for 100 kr. Et tilbud, som de matematikstuderende næppe blev imponerede over.

Underskudsgaranti
Det var De Studerendes Råd og Laug (SRL), der stod for arrangementet, og talsmand Mikkel Krogsholm håbede at lokke mindst 10.000 studerende ind på festivalområdet.

»Det går fantastisk. Vejret er med os, publikum er med os, og bandene har givet den gas. Det er uden tvivl en fusionsfest, som mange vil huske,« lød den begejstrede besked fra Mikkel Krogsholm under Nephew-koncerten.

Aarhus Universitets ledelse havde givet et tilskud på 750.000 kr., men selv hvis dette beløb og entréindtægterne ikke rækker til at betale de store musiknavne, er risikoen til at overse for SRL. Århus Kommune har således udstedt en underskudsgaranti. martin.johansen@jp.dk

Vejret er med os, publikum er med os, og bandsene har givet den gas. Det er uden tvivl en fusionsfest, som mange vil huske.
Mikkel Krogsholm, talsmand for De Studerendes Råd og Laug

 http://jp.dk/indland/aar/article952885.ece

 

En ég er farinn að lesa aftur, enjoy ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 19:26:54 / Atli Már

Enginn veit fyrr en allt í einu

Jæja, eins og Viðar sagði í ófá skipti meðan hann var hér, og það allt út af einhverjum gömlum manni í bónus, meira ruglið hehe.

 

En allavega þá er orðið alveg ægilega langt síðan ég bloggaði síðast og allt of mikið sem hefur gerst svo ég geti skrifað allt niður, þannig að þetta verður bra punktablogg (stolin hugmynd frá emmzu ;))

 

  • Átti afmæli, er þar með orðinn eldri heldur en ég var síðast, engin grá hár ennþá, enda frekar lítið af hárum yfir höfuð þarna uppi
  • Viðar og Ásta Ósk komu
  • Við keyrðum um alla Danmörku og skemmtum okkur konunglega
  • Páskarnir voru og ég fékk fleiri páskaegg heldur en ég hef nokkurntíma fengið, og það þegar maður býr í danmörku hehe
  • Viðar og Ásta Ósk fóru
  • Veðrið er búið að vera alveg geðveikt undanfarna daga og er ég að nálgast því að fá bóndabrúnku eftir að hafa spilað fótbolta í t-shirt síðustu tvo daga
  • Spilaði minn fyrsta leik með SF Heklu (sfhekla.dk) í gær í geðveikum hita í gettóinu, vorum frekar stressaðir enda var eitt lið barið í spað þarna fyrir tveim árum eftir leik
  • Við sluppum ómeiddir frá leiknum
  • Töpuðum 3-1
  • Ég er allur út í sárum og hælsárum eftir skóna, of langt síðan ég var í þeim síðast
  • Fór síðan á æfingu áðan og fékk fleiri sár
  • Samt alveg geðveikt gaman
  • Jæja
  • Er þetta ekki að verða ágætt
  • Prófin byrja 19 maí og ég er kominn með í magann af stressi
  • Síðasta prófið er 18-20 júní, ekki kominn tími á það ennþá
  • Ég kem sennilega heim fljótt eftir það til að reyna að fara að vinna sér inn einhvern pening
  • Jæja
  • Nú er þessu alveg að verða lokið en...
  • Verð samt að segja eitt enn
  • Ég og Emma erum búin að vera saman í þrjá mánuði í dag, mjög gott ;)
  • Jæja
  • Er þetta nú ekki orðið meira en nóg
  • Held það

 Fariði varlega í vikunni :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 18:41:48 / Atli Már

Lítið að frétta...

Já það er nú eikkað frekar lítið að frétta þessa dagana. Maður reynir að læra eikkað, hitta emmu sem oftast og spila smá handbolta, lífið er gott :)

 

Annars fer nú að styttast í að Viðar og Ásta Ósk fari að koma, eiga flug 5. apríl, skírdag, og hlakka ég geðveikt til að fá þau í heimsókn, verður frábært og verður án efa ýmislegt vesenast :D

 

Man ekki hvort ég var búinn að nefna þetta, en ég var að kaupa ýmislegt í íbúðina um daginn, td gardínur og er þetta núna orðið geðveikt heimilislegt og er ég alveg ægilega ánægður með hvernig þetta til tókst. Núna get ég meira að segja lært heima, og lærði meira að segja helling í dag bara heima því það var enginn tími.

 

En svona rétt í lokin vil ég þakka allar sendingarnar sem ég hef fengið undanfarna daga, kom mjög skemmtilega á óvart :D Takk kærlega fyrir mig :)

 

En annars hef ég ekki meira að segja, hafið það gott

      Atli Már :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 16:56:59 / Atli Már

Ægilega gott veður

Held að það sé eikkað um 15 stiga hiti hérna í dag, vona að sumarið sé að koma núna.

 

En varð að skrifa smá svo að allir þrír sem kíkja á þessa síðu reglulega (Emma, mamma og Þórunn) hætti að kvarta hehe.

 

Ég var að breyta íbúðinni og hún er orðin alveg fullkominn, komnar gardínur og allt hehe. En allavega er ég kominn með eldhús/skrifborð og skrifborðsstól við og svo keypti ég svona hillusamstæðu til að hafa sjónvarpið á. Þannig að núna er íbúðin alveg ægilega fín og mér finnst vera meira pláss svo þetta heppnaðist mjög vel :)

 

En fyrst ég hef svona lítið að segja ætla ég bra að slútta þessu með sögu sem stærðfræðikennarinn minn sagði okkur í tíma um daginn. Hann kemur nefnilega alltaf með sögur öðru hvoru og segjir að þær séu til að vekja okkur hehe en allavega hérna kemur sagan.

Hann sagðist einn laugardagsmorguninn hafa verið í sundleikfimi með nokkrum á aldri við hann, en hann er orðinn eikkað rúmlega sextugur. Svo þegar þau fara í pottinn eftir leikfimina tekur hann eftir því að ein konan er með stærðar glóðurauga. Hann sagðist ekki hafa þorað að spyrja hana hvað hefði gerst, því hver veit nema karlinn hefði danglað í hana. En önnur kona í pottinum spyr konuna hvað hún hafi eiginlega gert við augað á sér. Konan segir þá skammast sín svo að hún vilji varla segir það en segir síðan að hún hafi fengið glóðuraugað á klósettsetunni heima hjá sér. Þá vilja nú allir í pottinum fá frekari útskýringar og þá kom allt í ljós. Hún hafði verið út að skemmta sér eitt kvöldið, og drukkið full mikið rauðvín, og áður en hún fór að sofa þurfti hún að fara og æla en þegar hún beygði sig niður að klósettinu gleymdi hún að opna klóstið og skallaði setuna með þessum afleiðingum hahahahaha :haha:

 

Já svo segir fólk að unglingar séu eikkað verri en fullorðið fólk :D

 

En þetta er orðið nóg af rugli

Mvh.     Atli Már :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 11:36:18 / Atli Már

Snjokorn falla lalala a allt og alla lalalaa.......

A thridjudaginn a leidinni i skolann hugsadi eg, hmmm mikid er nu hlytt og gott uti, ætli sumarid fari ekki bra ad koma, a midvikudeginum var svo kominn snjostormur og eg komst varla heim a midvikudagskveldid, strætoarnir voru endalaust seinir og ekkert gekk, en jæja eg komst heim a endanum.

A fimmtudaginn (i gær) komst eg svo ekki i skolann thvi strætoarnir keyrdu ekki fyrr en um midjan dag og bædi i gær og i dag eru heilmiklar seinkunnir.

 

Ja svona er danaveldi ef thad kemur snjor, allt verdur stopp og folk festist allsstadar. En thetta er nu reyndar alveg hellingur af snjo, held ad thetta se meira heldur en hefur komid a selfossi undanfarin amk 2 eda 3 ar.

 

 

En um annad en vedur. eg er loksins ad fara ad spila aftur eftir ad eg meiddist i hneinu, leikur a sunnudaginn. En thad versta er ad thessi helv... thjalfari sagdi ad honum finnst eg passa hneid of mikid enntha svo hann thordi ekki ad lata mig spila med odru lidinu, svo eg er ad fara ad spila med thridja lidinu, sem er i seria 1 sem er 5 deildin eda eikkad rugl, bra gamlir kallar ad leika ser. Verdur nu samt gaman ad sja hvernig gengur hja manni ad spila svoleidis bolta hehe, en vard samt pirradur ad fa ekki strax ad spila med odru lidinu, en thad eru margir leikir i mars svo thetta er allt i lagi.

 

Annars er bra roleg helgi framundan, Emma ætlar ad koma a eftir thegar skolarnir okkar eru bunir og ætli madur reyni bra ekki ad elda eikkad gott og svo bra horfa a tv (ja og jafnvel hellisbuann, var ad fa hann a disk :) )

 

En vonandi ad folk geri ekkert of mikid af ser um helgina

Vi snakkes :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 13:05:08 / Atli Már

Skóli, skóli og aftur skóli

Tha er skolinn kominn a fullt aftur og sit eg i thessum skrifudu ordum a bokasafninu i skolanum og er ad taka mer sma pasu fra lestrinum. Madur er svona ad reyna ad vera adeins duglegri en madur var a sidustu onn ad lesa fyrir timana og vera meira i skolanum, thvi thad er stadreynd ad ef madur er heima hja ser og ætlar ad lesa eikkad gerist ekki svo mikid. 8|

 

Annars er allt fint ad fretta af mer, er ad fara a æfingu i kvold og er ad vonast til ad geta verid eikkad med, en eg hef ekkert getad verid med sidan eg meiddist i hneinu, en er nu ordid miklu betra og vonast til ad geta verid med a fullu i næstu viku

 

Svo er bra thorrablot a laugardaginn, verdur an efa gedveikt skemmtilegt, eins gott ad thad se bodid upp a hakarl og svidasultu mmmmmm :haha

 

Hamar/selfoss (og thar med tryggvi) er ad fara ad spila urslitaleikinn i bikarkeppninni i korfubolta, snilld :lol:

Vona ad their vinni thetta og vildi oska ad eg væri a islandi til ad upplifa stemmninguna i hollinni, en madur getur thvi midur ekki verid allsstadar :|

 

Buinn ad fa ut ur ollum profunum og nadi ollu nema rekstrarfrædinni, (held ad thad heiti thad a islensku) en ef eg næ godri einkunn ur henni a thessari onn get eg nad henni samanlagt og tha tharf eg ekki ad taka thetta aftur.....held eg allavega, er ekki alveg med thetta allt a hreinu heeh, en madur vonar thad besta :)

 

En annars, faridi nu ad lata heyra i ykkur, mætti halda ad enginn nenni ad lesa thetta, er madur bra ordinn gleymdur her i baunalandi 8)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 17:13:35 / Atli Már

Kominn heim

Þá er maður kominn heim frá Sviss, og hvað getur maður sagt annað en, ÞVÍLÍK SNILLDARFERÐ. :D

Þetta var snilldarferð sem maður á aldrei eftir að gleyma.

En núna er maður kominn aftur til dk og alvaran hefst á ný...skólinn 8|

Þarf að vera duglegri en síðast svo ég falli ekki í neinu, en ég féll í einu núna og á eftir að fá út úr einu prófi sem ég held að ég hafi náð. En það er mikið af erfiðum prófum í vor svo maður verður að vera duglegur alla önnina.

 

Fór til læknis áður en ég fór í skíðaferð, hann sagði að það hefði blætt inn á hnéið en ekkert sé skemmt svo þetta taki bra tíma að lagast, og ég er miklu betri og get vonandi byrjað að æfa í næstu viku.

Ég og Emma erum að fara á þorrablót hérna í Århus eftir tæpar tvær vikur, held það sé 17 feb en er ekki alveg viss, það verður án efa geggjað gaman, ég er búinn að heyra að helga braga sé skemmtanastjóri og sixties sé að spila og eikkað, og svo fær maður nottla þorramat mmmmm :haha: hákarl og svið og eikkað, algjör snilld :D

En ég ætla að fara að læra fljótlega, og Þórunn, farðu að blogga aftur, það er ekki nóg að blogga bara þegar maður er veikur hehe :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 18:08:14 / Atli Már

Í Svissaralandi

hæhæ, hjá mer er allt gott ad fretta. er i sviss nuna i flottasta husi sem eg hef nokkurntima verid i held eg. Vid skemmtum okkur konunglega herna :) hef svosum ekkert mikid ad segja, vildi bra svona lata vita af tvi ad eg er a lifi og skemmti mer vel Hafid tad gott Kvedja fra atla skidagarpi :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 16:19:25 / Atli Már

I thyskalandi

Nuna sit eg heima hja felaga minum jacob i flensburg og reyni ad skrfa nokkrar linur a tölvua hans, sem er nota bene med thykt lyklabord svo thetta verdur eikkad spes bloggfaersla. En hja mer er allt gott ad fretta, komum hingad i gaerkveldi og vorum adan ad koma heim fra tvi ad vera ad skoda adeins midbae flensburg. a morgun förum vid svo til hamburg og fljugum tadan annad kveld til sviss. Eg er buinn ad fa ur tveim profum, staerdfraedi fekk eg 6 i og upplysingataekni fekk eg 7 i svo eg er mjög sattur, svo a eg bara eftir ad fa ut ur rekstrarfraedi og bokfaerslu. Eg nenni ekki ad skrifa meira nuna, skrifa örugglega meira tegar eg er i sviss. Bid ad heilsa öllum :D P.s. er ekki med sima tannig ad tid getid ekki hringt i mig :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 22:33:52 / Atli Már

Próf, stress og önnur skemmtilegheit...

Prófin eru í fullum gangi núna, búin með 3 og á eitt eftir. Er ekki búið að ganga nógu vel sko, sennilega búinn að ná einu, það er svona ná eða ekki ná próf, maður fær enga einingu fyrir það. Og svo eru hin tvö spurningamerki, en þau eru eiginlega svona hálfleikspróf, þannig að þó að ég falli í þeim get ég með enn betri einkunum í vor náð áföngunum. svo er prófið sem er eftir munnlegt hóppróf og er það prófið sem skiptir mestu máli. Því það er eina prófið sem ég þarf að sýna til að fá námslánið, því það er lokapróf í þeim áfanga. Þannig að ef ég næ því prófi ætti ég að fá námslánið án alls vesenis, ef ég næ því ekki er ég í vondum málum. En þá er bra málið að læra vel og vera jákvæður.

 

Ég er loksins farinn að geta spilað handbolta aftur. Búinn að vera að æfa og æfa en ekki með neina leikheimild. En loksins fyrir rúmri viku síðan fékk ég leikheimildina (sem kostaði mig nota bene 2300 danskar krónur :!::!::!: ) Þeir segja að það kosti að æfa hjá þeim, en ég þurfi ekki að borga það, en ég þurfti að borga leikheimildina sjálfur, vona að það muni borga sig einhverntíma, en ég gat ekki bra æft og æft án þess að keppa nokkurntíma, ekkert lið sem vill borga þennan pening fyrir íslending sem enginn þekkir hehe. En allavega eru leikirnir tveir búnir að ganga vel, er að fá slatta af spilatíma og er að spila ágætlega, erum komnir með 3 stig úr þessum tveim leikjum sem verður að teljast fínt. En seinni leikurinn var í gær, og um miðjan fyrri hálfleik lenti ég á hnéinu og fann einhvern smell. Stóð upp og fann að ekki var allt eins og það átti að vera, small og small í hnéinu meðan ég hljóp til baka, eins og eikkað væri laust eða eikkað álíka. En ég vildi samt ekki segja neitt heldur hélt áfram að spila. Þegar ég fór út af í seinni hálfleik kældi ég hnéið og kom svo aftur inná. Spilaði í tæpan hálftíma eftir að þetta gerðist og alltaf þegar ég hljóp af stað eða tók hliðarskref fann ég til í hnéinu, eins og það væri að festast og losna og smella í því og eikkað rugl. En náði samt að klára leikinn án þess að þurfa að fara út af vegna meiðsla. Eftir leikinn var svo orðið frekar vont að ganga og hnéið stífnaði meira og meira. Svo í nótt var ég að vakna oft út af verkjum í hnéinu og núna get ég ekki rétt úr því og það er helling bólgið, veit ekki alveg hvað er að.
Eins gott að það verði komið í lag í næstu viku, því ég er að fara í skíðaferð eftir tæpar tvær vikur.

 

En búinn að skrifa allt of langt um þetta. Er líka að spá í að fara að sofna yfir sjónvarpinu, mikið að læra á morgun, ætlum að hittast og ákveða hvað við ætlum að segja í þessu munnlega prófi, eigum nefnilega að verja verkefni.

 

Svona rétt í lokin, horfið á þetta og hafið hljóðið á, mesta rugl sem ég hef nokkurn tíma séð

       http://stfd.net/

Pælingin með þessu er ekki alveg á hreinu, og skil ekki fólk sem nennir að horfa á þetta og finnst þetta voða fyndið (ha!! humm!!! hóst*emma*hóst) ;)

 

Uss ég er að horfa núna á tv og þar er fólk sem hefur/segjist hafa séð fljúgandi furðuhluti og verið tekið af geimverum, vá er sumt fólk ruglað. ein segist meira að segja vera gift geimveru og hafa eignast með henni 3 börn, og sú er ekkert að grínast sko 8|

 

En jamm er farinn núna, kommentið allir sem lesa ;)

 

PS: dr. Sandra :) verkurinn er utan á hnéinu, ca í miðjunni þar sem er eins og tvö bein mætast, ef þú veist eikkað hvað ég er að tala um máttu alveg segja hvort þú haldir að þetta sé eikkað sem skipti máli, hvort ég þurfi að fara til læknis eða eikkað, má náttla ekki missa af skíðaferðinni hehe :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 18:44:39 / Atli Már

Gleðileg Jól :D

Ég vil byrja á því að óska öllum gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs en það mun koma eftir einungis nokkrar klukkustundir. :) Hjá mér er allt fínt að frétta, fór heim þann 20. des og kom aftur til danmerkur í gær. Það var mjög fínt að koma heim og hitta alla aftur. Verst að maður þurfti eikkað að vera að þykjast vera að læra því ég er í prófum í janúar, fyrsta prófið 2. jan svo það er frekar rólegt gamlársdagskveld framundan. En svo allir viti þá verð ég ekki einn um gamlárskveld, eins og sumir voru hræddir um. Ég er svo heppinn að eiga vini í Århus, sem verða hér um áramótin. Nokkrar stelpur sem voru með mér í lýðháskólanum leigja saman og buðu mér að koma til sín í kveld. :D Þannig að þetta verður örugglega ágætis kvöld, þó maður þurfi nú að fara snemma að sofa, ætli maður verði ekki að læra helling á morgun, svona síðasta daginn fyrir fyrsta prófið í háskólanum. :$ Svo er sagt að Íslendingar skjóti mikið upp, ég er búinn að vera að vera að hlusta á sprengingar næstum stanslaust frá því í gærkveldi áður en ég fór að sofa og er enn að hlusta, og þetta er búið að vera í allan dag líka. Ekki gott fyrir mann sem er að reyna að læra undir próf hehe. En ætli maður fari ekki að búa til sósu og fari svo að borða kjötið sem mamma sauð handa litla stráknum svo hann myndi ekki borða pasta í kvöld. Takk mamma;) Vona að allir skemmti sér vel í kvöld

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5